Guyana
Ég var að ramba í gegnum google og skoða ýmislegt um Guyana, í norðurhluta Suður Ameríku. Ég hef alltaf verið svolítið forvitin um það land því fyrir Suður Ameríkönum er þetta ekki land í Suður Ameríku; þeir eru eitthvað annað. Það fer líka ENGINN þangað; er gleymda landið. Er svona ekta land til þess að fara út í svona Indiana Jones ævintýri, á vit þess óþekkta. Það er þó vissulega fólksfjöldi sem býr þarna, og menning, borgir o.fl. Sagt hefur verið um Guyana að það sé mjög hættulegt land. Getur verið, en fyrir fólk sem heldur að í Suður Ameríku séu mjög mikið af glæpum bendi ég á grein úr Mbl.is frá janúar:
Í greininni er fjallað um einhvern mann sem brjálaðist, fór til þorps vestur af höfuðborginni og fór að skjóta fullt af fólki, svo að það endaði með því að 11 létust. Mér finnst ég nú búin að heyra svona sögur aaaaaansi oft frá Bandaríkjunum, er það ekki? Liggur við í hverjum einasta mánuði. Þá hljóta Bandaríkin klárlega að vera hættulegasta land í allri Ameríku.
Eða hvað?
Nýjustu fréttir
Jæja góðir hálsar. Hef svosem ekkert til að hneykslast á né annað slíkt. Nú eru bara búin Töðugjöldin / Landbúnaðarsýningin og það var sko alveg BILAÐ að gera hjá okkur í Kanslaranum. Það var bara ekkert smávegis og stóð maður bara upp á endann frá 11 til 23. Við erum að tala að traffíkin stoppaði EKKI, og allan daginn voru einhverjir að bíða eftir að það losnaði borð, og við erum að tala um sal sem rúmar tæpa 100 í sæti! Þannig að það var um 33 manneskjur sem maður var að þjóna í hvert sinn, á hvern þjón, sem var bara klikkun. En sem betur fer endar alltaf allt einn daginn og það góða við það þegar það er mikið að gera, að tíminn vill líða hraðar en venjulega. En það má alveg segja að maður var alveg búinn eftir þetta og svo vaknað kl. 08:30 til að horfa á seinni hálfleik í handbolta Ísland-Frakkland.
En það eru nokkrar fréttir af mér:
- Flyt til Reykjavíkur 1. september. Heimilisfangið mitt er Bergþórugata 31. Velkomin í heimsókn þó íbúðin sé smá.
- Er komin með fasta vinnu á Upplýsingamiðstöð Ferðamanna á Ingólfstorgi.
- Er að byrja nám í Leiðsögumannaskóla Íslands 1. sept.
- Er búin að skrá mig í Gravity námskeið hjá Baðhúsinu, 4 vikna prógramm 3 sinnum í viku.
- Erum að taka við hvolpapöntunum. Labrador Retriever, 9 stk hvolpar.
Nýjasta Nýtt!
Þann 10. ágúst átti Ránsla okkar, labradortíkin, HEIL 9 STYKKI af hvolpum!!!! Aaaaaalgjör yndi, skal ég segja ykkur og við erum alveg oooofboðslega stolt af stelpunni okkar, enda mamma í fyrsta sinn og stendur sig algjörlega alveg eins og hetja!
Fengum í gotinu:
- Einn svartan hund
- Eina svarta tík
- Fimm gula hunda
- Tvær gular tíkur
MYNDIR MYNDIR MYNDIR!!!!!!!!!!!!
Ef ykkur langar í kríli þá getið þið haft samband við mömmu eða pabba í síma 893 6369 eða 894 9450. Ef ykkur langar bara að koma og skoða þá hringið þið bara í mig
Í hring eftir hring eftir hring á Hringbrautinni
Jæja þá er kannski kominn tími að kasta inn færslu.
Hvað var svo gert um versló, spyr ég ykkur?
Ég bjóst bara mest við því að þurfa að vinna alla helgina, en svo fékk ég bara frí og meira að segja Toyota station bílinn hjá pabba til að skreppa til Reykjavíkur. Svo mér til mikillar hamingju þegar ég hringdi í Kristínu, þá var víst komið eitthvað plan um útilegu upp í Uppsveitum Árnessýslu, ásamt Hildi og var verið að nefna planið við Ingunni líka, og enduðum við með því að fara á föstudaginn 6 saman, ég, Kristín, Hildur, Ingunn, Sigþór og Marton upp á tjaldsvæðið Faxa, það tók okkur svolítinn tíma að finna það, höfðum ábyggilega keyrt þrisvar sinnum framhjá án þess að taka eftir því og svo þegar við komum inn og vorum rétt búin að leggja bílunum þá kemur kerla yfirmaður á svæðinu alveg hundfúl og spyr hvað við erum gömul. 24 ára segjum við og þá segir hún að aldurstakmarkið væri 25 ára. Síðan hvenær sögðum við, þar sem krakkarnir höfðu tjaldað þarna tvisvar áður og þá sagðist hún bara setja reglurnar þegar þeim hentaði. Benti svo kella á station bílinn okkar þar sem voru ég Hildur og Kristín og spurði um aldurinn í okkar bíl, að við hlytum nú að vera ansi mikið yngri. Þegar við urðum hin móðguðustu þá sagðist kellingin ætla að gefa okkur “séns”, með þvílíkum fílusvip að við bara ákváðum að fara því við vildum ekki vera þar sem við vorum ekki velkomin, og sérstaklega ekki að borga úr okkar vasa fyrir SVONA gestrisni. Svo við hringdum á nokkra staði og ákváðum að fara bara á tjaldsvæðið á Geysi, þar sem við fengum út úr 800 kallinum okkar heitar sturtur og heitan pott, sem að vísu tók svo lengi að hita að við fórum bara í sund annars staðar. En við skemmtum okkur konunglega, vorum 1 nótt á Geysu, svo fór helmingurinn til Rvk og restin á sumarbústaðasvæði ættingja Hildar og þar var brenna, sungið með gítar og drukkið. Útkoman eftir helgina var svo nettur sólbruni í andlitinu á mér. Merkilegt, þar sem var bara einn daginn sól, og ég búin að vera úti í Suður Ameríku í 11 mánuði með aðeins 4 rigningardaga og samt brann ég aðeins einu sinni svona. Übersól á Íslandi maður!
Svo er ég farin á fullt í að plana flutning til Reykjavíkur. Allt komið held ég bara, allavegana komin með nokkra hluti á hreint eins og með íbúð og vinnu… Lítur út fyrir að ég komi til með að verða 101 rotta, með vinnu á Ingólfstorgi og búi þar á því svæði líka :-p
Svo ákváðu pabbi og mamma bara að skreppa til KÚBU í 10 daga annað hvort 29. nóv eða 9. des og ég á að koma MEEEEEEEEEEEEEEEEEEÐ!!!!!!!!!!!!!!!!
Hvílík hamingja!!!!!!!!!!!!!!!!! Þið vitið ekki hvað mig langar ofsalega rosalega!!!
Ég þurfti svo í gær, miðvikudag að skreppa til Reykjavíkur að fara í vinnuviðtal, sem gekk bara mjög vel og fékk þá vinnu staðfesta og byrja ég 1. september. En verr gekk að komast út úr Reykjavík, því þegar maður fer út úr miðbænum og ætlar á Miklubrautina þá er það bara alls kostar ÓMÖGULEGT. Ég fór af Snorrabrautinni inn á Hringbraut til vinstri og þar á svo að taka við Miklabraut en þar er búið að breyta og gera mislæg gatnamót, en það er HVERGI hægt að komast neitt í átt að Mosfellsbæ heldur aðeins aftur til baka. Svo ég fór í hring á Hringbrautinni. Bölvaði mislægu gatnamótunum og ætlaði að reyna að gera þetta rétt í þetta skiptið. Pottþétt einhver beygja einhvert þó ég hefði ekki séð hana í fyrstu tilraun, en engin skilti og ekki neitt og ég fór í ANNAN hring, inn á Hringbrautina aftur, í átt að háskólanum. Svo ég gafst upp á þessu og fór aftur inn í miðbæ og ætlaði að reyna að komast inn á Miklubrautina stutt frá Kringlunni. Svo ég beygði niður, en þá mátti akkúrat ekki beyja til vinstri svo nauðug neyddist ég til þess að fara aftur þennan SAMA DJööö— hring á Hringbrautinni. Ég endaði svo með því að fara alveg ÞVÍLÍKA snúninga um allar smágötur og öll hverfi í austurhluta Reykjavíkur til þess að komast út einhvers staðar hjá Skeifunni, en þá mátti ég ekki heldur fara inn á Miklubrautinna… var engin aðrein svo ég varð tilneydd að fara upp í Mjódd, og var viss um að ég kæmist þar að McDonalds og þaðan út á Miklubraut, en þar var vesen LÍKA að komast út úr þessari hringavitleysu sem ég var búin að koma mér í. Rosalega var ég orðin þreytt og pirruð á þessu og ég bara hreinlega man ekki einu sinni hvernig ég losnaði úr þessu.
En eitt er víst að það VERÐUR að gefa því fólki sem er að fara í Mosfellsbæjarátt fleiri sénsa á að komast inn á Miklubrautina, því þetta bara GENGUR EKKI!
Svo var ég að vinna á Kanslaranum í kvöld… fullt að gera og hópur sem kom í mat.. rosa gaman. Eiginlega ekkert nema útlenskir ferðamenn í dag, sem er mjög gott því þeir eru einstaklega kurteisir.
En jæja nóg í bili!
Heyrumst!
Komin heim
Fyrir þá sem ekki vissu, þá er ég komin heim til Íslands… Í bili allavegana. Er ýmislegt að veltast í hausnum á mér þessa dagana en ég ætla allavegana að voga mér að segja…
Ef einhver veit um vel borgaða og góða vinnu sem gæti hentað mér í Reykjavík, þá má sá láta mig vita.
Einnig ef einhver veit um mjög ódýra íbúð til leigu eða ef einhver vill leigja mér herbergi, þá er það líka mjög velkomnar upplýsingar.
Takk takk.



